Já, ég er loksins búin að fá frá skólanum gögn um húsnæði fyrir mig!
Ég verð semsagt í einstaklingsherbergi í Hoshien heimavistinni sem er staðsett bara rétt hjá skólanum! Í Shinjuku, sem er aðalpleisið í Tokyo, aðal djammstaðurinn og svona! Þar má einnig finna "uppteknustu" (e. busiest) lestarstöð í heimi, Shinjuku Station, en á hverjum degi fara 3.6 MILLJÓNIR manna í gegn! Á hverjum degi! Og maður verður að passa sig að fara út á réttum stað, því annars ertu bara skrúfaður. Gæti tekið þig marga tíma að koma þér á réttan stað aftur!
Svo þið ratið til mín . Ég mun búa í rauða kassanum, og skólasvæðið (eða hluti af því amk er þarna til hægri)
Svo þið ratið til mín . Ég mun búa í rauða kassanum, og skólasvæðið (eða hluti af því amk er þarna til hægri)
Byggingin mín er þessi neðsta til hægri, building 3, svo er nú gott að vita til þess að það er kirkja bara í næsta húsi, stutt að fara til að fara með bænirnar.Svo er sameiginlegt eldhús, og þvottaaðstaða og ryksuga. Reyndar er hvergi minnst á klósett né baðaðstöðu.. kannski er ekkert gert ráð fyrir því að maður þurfi þess neitt.
Reglurnar virðast ekki vera eins strangar og ég bjóst við, maður á að vera kominn heim kl 1 eftir miðnætti, útidyrahurðin er opin frá 7.30 - 01.00, ohh damn.. ég verð þá að hætta við morgunskokkið mitt sem ég fer alltaf í klukkan 6... jæja...
Ég hafði nefnilega séð á flestum af þessum heimavistum er útivistarbann eftir klukkan 11, oft fyrr, en ég má vera úti til eitt, ligga ligga lái!! En engir gestir eru leyfðir inni á herbergi eftir kl 11, ekki einu sinni þeir sem búa á heimavistinni.
Annars virðast ekki vera neinar strangar reglur, bara þetta helsta, engin "óheimil" partý, engin dýr, ekki hengja þvott útum gluggann og svona. Og fyrir herlegheitin borga ég ca 50 þúsund íslenskar krónur á mánuði (með rafmagni og hita og símalínu og loftkælingu)
Nýja heimilisfangið mitt:
Waseda Hoshien International
Room # 03- 079
2-3-1 Nishi Waseda Shinjuku-ku
Tokyo 169-8616 Japan
Og símanúmerið mitt verður á herberginu:
+81-3-32-05-6614
Annars skil ég ekki hvernig í ósköpunum gatnakerfið í japan virkar, það eru víst engin götuheiti, nema á þessum stærstu götum, og svo eru húsin númeruð eftir því hvenær þau eru byggð! Svo að hús númer 12 getur verið við hliðiná 1345, hafi það verið byggt fyrr! Mjög spes, ekki mundi ég vilja vera póstburðarmaður þar.. Svo nota þeir víst bara kennileyti til að komast leiðar sinnar. Mjög sérstakt! Í eins stórri borg og Tokyo er, þá bara skil ég ekki hvernig þetta getur gengið upp!
Svo má líka minnast á þá skemmtilegu staðreynd að í Shinjuku "hverfinu" búa rúmlega 312.000 manns! Bara jafnmargir og á öllu íslandi!! ca 17000 manns á hvern ferkílómeter.
Annars er hverfið mikið verslunarhverfi, helstu raftækjaverslanirnar og svona ( sem hver er 8 hæðir eða svo) Þar eru líka að finna hæstu skýjakljúfa borgarinnar, en líka almenningsgarða já og bara allt sem maður þarfnast held ég..
Hey já, svo er H&M að fara að opna í fyrsta skipti í Japan í haust!! Bara í "næsta" hverfi við mig, Harajuku ;) Kannski einhver von til þess að ég finni á mig föt í japan!
Knús í klessu

