Fór í dag með listakúrsinum mínum í Tokyo University of Fine Arts and Music (national museum er víst næst), að skoða nokkrar listadeildir skólans. Vá hvað þetta var geðveikt!! Ef ég ætti endalausan pening mundi ég eyða næstu 10 árum í þessum skóla að læra ALLT sem er kennt þarna! Skoðuðum málmdeildina, ureshi lakkið, keramik, vefnaðar og textíl. Ótrúlega gaman að sjá þetta allt, og hvernig þetta er gert, og hvað fólkið í skólanum er að gera. Margt ótrúlega flott, og flókið og magnað að þetta skuli vera gert í höndunum bara..
(setti inn myndir sem ég tók í dag á myndasíðuna, frekar boring myndir kannski en mér fannst þetta merkilegt og skemmtilegt!)
Það var greeeeeenjandi rigning í dag, svona kínarigning eins og við familían köllum það, (vorum í kína á regntímabilinu, þekkjum monsoon rigningar mjög vel) Svo maður var orðin vel blautur þegar við komum í skólann, skórnir orðnir blautir í geng og buxurnar rennblautar upp að hnjám. Auðvitað er maður svo vel búinn að vera með regnhlíf alltaf, en samt náði allt að blotna, í töskunni minni og allt.. nýja stílabókin mín blaut.. En hva, þetta var hressandi! Langaði helst að vera bara á bikiníinu í rigningunni! Alltaf verið soldið skotin í rigningu (sem er lóðrétt ekki íslensk og lárétt) mamma þurfti víst oft að stoppa mig í dyrunum allsber í stígvélunum á leiðinni út í rigninguna...
Svo strax eftir þennan skemmtilega skóladag, fór ég til Harajuku að hitta Palla, loksins náðum við að hittast! Við fórum reyndar strax til Shibuya á okonomiyaki stað, ég hef ekki fengið okonomiyaki áður svo þetta var mjög spennandi, og þarna eldar maður það sjálfur á pönnu á borðinu. Palli kenndi mér á þetta allt saman enda svo vanur hér í japan ;). Þetta var mjög gott, held að þetta sé uppáhalds japanski maturinn minn! Það var líka ótrúlega gaman að sjá hann Palla, og hann gaf mér líka litla Pikachu tösku, spil og flugvélabók á japönsku! Gott að eiga friends in high places ;) bókstaflega! Takk Paruchan!!
Svo röltum við aðeins um Shibuya og reyndum að halda okkur vakandi, og fórum svo bara snemma heim, lærdómur hjá mér á morgun og flug hjá Palla snemma í fyrramálið.
Jamm, svona var nú dagurinn hjá mér..
Knús í bala
HH
Um mig
Heimilisfangið mitt
2-3-1 Nishi Waseda
Shinjuku-ku, Tokyo 169-8616
Japan
Sími: (+81) 090-8494-1304
Heimasími: (+81) 3-3205-6614
Email í símann: hronn(hjá)i.softbank.jp
eða hronnsan(hjá)gmail.com (líka venjulegt email)
Myndirnar mínar
Vinir og allir hinir
Vinsældir
Smá blogg svona til að láta vita að ég sé á lífi.
Ég er á lífi, það er bara ekkert merkilegt að gerast hjá mér.. Bara venjulegt, þannig séð, skóli á hverjum degi nema þegar er frí. En maður sér samt alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi, eitthvað skrítið, eitthvað óvenjulegt og lendir í nýjum aðstæðum.
Undanfarna daga er ég búin að vera í drykkjuleik sem ég samdi sjálf, sem gengur útá að drekka skrítinn drykk einu sinni á dag ;) Óáfengan sko.. Hitt væri nú ekkert of sniðugt svona í skólanum og svona.. En þetta er mjög spennandi og hingað til hef ég ekki dáið úr ógeði.
já... hmmm.....jamm...
Fór í dag í heimsókn á málmsmíðaverkstæðið hennar Mayumi sensei, þar sem ég mun læra skartgripasmíði einu sinni í viku næstu vikurnar! Mjög spennó, fæ að smíða eitthvað fallegt úr silfri. Svo var ég í því að túlka líka, Mayumi kann voða lítið í ensku, og hún Rachel sem er með mér í þessu kann voða lítið í japönsku, svo ég þurfti stundum að þýða. Mjög skemmtilegt. (Rachel sem er frá america kann greinilega ekki mikið í sínu eigin tungumáli því hún þurfti hjálp frá mér til að skrifa catterpillar.. fannst ég voða klár að kunna það!)
Ég er svo á morgun að fara í vettvangsferð í Tokyo National Museum með listakúrsinum mínum, það verður gaman. Svo eftir það er ég að fara að hitta hann Palla minn :D Hann er sko flugþjónn hjá All Nippon Airways (japanskt flugfélag), svo hann er hér í Tokyo reglulega, en við erum fyrst núna að ná að hittast hér í Tokyo! Hlakka ekkert smá til! :D
Ég er búin að setja nýjar myndir á myndasíðuna, (meira að segja 2 ný albúm síðan ég bloggaði síðast)
Foss í Toyama garðinum sem er bara handan við hornið frá húsinu mínu
Annars þýðir Hrönn (sem þýðir alda eins og allir vita) nami á japönsku, sem er svona 波
Knús og kossar úr hlýjunni
Nami
Nei grín, glætan að ég nenni að blogga um kreppuna!
Allt annars bara í gúddí í Tókýó.. ennþá frekar milt úti, bara þægilegt, sami hiti inni og úti, ekki enn komið peysu veður nema kannski á kvöldin ef maður er skræfa..
Skólinn gengur bara ljómandi vel, og ég er loksins búin að læra á þvottavélina.
Ég fór áðan í göngutúr í bæinn minn, fór að Takadanobaba stöðinni (korters labb eða svo) og skoðaði í búðir og svona, tók eftir því á leiðinni að byssubúðin sem ég hafði tekið eftir um daginn og ekki þorað að segja frá svo mamma fengi ekki sjokk, er bara módel-byssu búð! sjúkk maður..
Skoðaði nokkrar snyrtivöru búðir, og vá,, ég vissi ekki að það væri til svona margir svartir litir.. Sá svona pakkahárliti, og já 30 tegundir af svörtu, en allt "mismunandi svart" get svo svarið það að ég sá ekki mun... en þetta var allt með mismunandi númerum og svona. Sá svo konur reyna að velja milli 8g og 8gb... svart og svart fyrir mér! Greinilega ekki...
En það er allt til hérna fyrir svona glimmergellur eins og mig (og Hugrúnu) ;) Augnhár í öllum stærðum og gerðum og litum og glimmeri! Naglalakk í öllum mögulegum og ómögulegum litum og bara you name it, þvílíkt mikið af allskonar naglaskrauti og steinum til að festa á neglur og andlit, hægt að vera geðveik gella hérna sko!
Svo horfði ég á japanska úllínga á fylleríi... Já svei mér þá.. Svona 60 krakkar á menntaskóla aldri á miðju torgi í geðveiku stuði, öskrandi kanpai! og skálandi í bjór, teigandi heilu dósirnar í einu og strákarnir komnir úr að ofan.. og já klukkan var tíu mínútur yfir 9... Þeir byrja yfirleitt snemma og fara snemma heim japanir, en vá, þvílíka magnið sem þeir drekka á stuttum tíma.. getur ekki verið hollt.. Gekk síðan framhjá alveg þónokkrum vel ölvuðum "salary man" svona bisness köllum sem eiga sér ekkert líf, vinna 12 tíma á dag og fá sér svo "nokkra"kalda eftir vinnu, og rúlla svo heim kl 10.. Frekar spes.. en soldið fyndið að sjá þá! En finnst nú íslenska "drykkjumenningin" þó skárri.. eða hvað..
Sá svo heimilislausann mann um daginn, sem væri nú ekki í frásögur færandi, nema það var svo huggulegt hjá honum! Sat á rosa fínum samanbrotnum pappakassa, með allt dótið sitt rosalega fínt og skipulega raðað í horninu og fötin sín rosa vel brotin saman! Þvílíkt huggó. (sýndist hann meira að segja vera með útvarp) Þetta er víst bara mjög algengt, það eru allir snyrtilegir þótt þeir séu heimilislausir. (og eru heldur ekkert að abbast uppá mann eða betla, sitja bara þarna..)
Jæja, er farin að horfa á japanska bíómynd :D
Gúddínætí
HH
p.s er búin að setja fleiri myndir á myndasíðuna!
Ég elska að sitja á gólfinu í karaoke og reyna að fylgja með japönskum texta við japanskt lag sem ég hef aldrei heyrt áður og syngja með.
Ég elska að vera í stærstu borg í heimi, en ná því samt að hitta 3 mismunandi hópa af fólki sem ég þekki í Shibuya fyrir tilviljun, á korteri. Þar á meðal 5 íslendinga.
Ég elska að labba götuna mína og sjá litla krakka labba ein heim úr skólanum í skólabúningunum sínum með hattana og skólatöskur sem líta út fyrir að vera 50 ára gamlar, og litla krakka 4-5 ára vera ein á röltinu.
Ég elska að sjá eldgamlar konur svo hoknar á lífinu að þær eru komnar með 90° beygju í bakið.
Ég elska að sjá konur/stelpur í kimono með mjólk og brauð í plastpoka.
Ég elska að horfa á hvað allir eru töff og trendý, allir kvenmenn í hælaskóm en mjög fáar geta reyndar gengið í þeim. Sérstaklega er líka töff að vera í loðskóm með húfu í 30° stiga hita og svo í mini stuttbuxum eða pilsi við.
Ég elska að labba um skóla kampusinn og það er alveg hljótt en endalaust af fólki í kringum mann og svo heyrast öðruhvoru öskur úr íþróttasalnum þar sem er verið að æfa Kendo eða Judo.
Ég elska að vakna við krákurnar sem búa í trjánum hér fyrir utan. Eða nei ég elska það ekki.
Ég elska að fara á veitingastað og skilja ekki matseðilinn en fá samt geðveikan mat.
Ég elska Fanta Pineapple.
Ég elska sushi.
Ég elska Tókýó.
Já skólinn er byrjaður svo alvaran er tekin við.. Verst hvað það er gaman í skólanum...! Japönsku kennarinn Iijima sensei er fyndnasta manneskja sem ég hef séð! Hún leikur allt og á svo fyndinn hátt, hún er bara eins og teiknimyndakarakter! Maður er í kasti alla tíma! Bara gaman, og lætur okkur auðvitað líka leika hluti eins og láta eins fífl! Aðrir kennarar skólans virðast reyndar vera jafnfyndnir því iðulega heyrast hlátrasköll úr öðrum kennslustofum! Gaman að vera kennari í japan greinilega.. íslenskir kennarar mættu læra aðeins af þeim..! (nema mamma hún er alltaf skemmtileg og fyndin, jafnvel þó hún ætli sér það ekki, hehe)
Svo eru hinir tímarnir sem ég er búin að fara í ÆÐI!!! Líst ekkert smá vel á þetta, annar þeirra fjallar um hönnun og arkitektúr í tókýó, og ég held að verði geðveikt skemmtilegur, og hinn er almennt um hönnun og arkitektúr- saga nútíma arkitektúrs, líka alveg ótrúlega spennandi! Það er sami kennari í þeim báðum, Erez, arkitekt frá ísrael, og hann er alveg fáránlega klár, allt sem hann segir meikar svo mikið sens, og hann sér hlutina á svo magnaðan hátt, og nær að koma því frá sér, sem er mikill kostur fyrir kennara. Svo þessi vetur verður æði!! Ég á svo eftir að fara í einn kúrs sem er líka fáránlega spennandi, sem er um hefðbundna list og handverk í japan, þar sem verður farið í ferðir í allskonar söfn og við fáum víst að prófa að gera eitthvað sjálf! Fyrsti tíminn er á föstudaginn, svo ég hlakka ekkert smá til!!
Ohh ég ætlaði ekki að verða þessi blogg týpa.. sem skrifar aldrei og þarf svo að rifja upp og nær aldrei að komast "up to date"..
Allavega.. set inn nýjar myndir á myndasíðuna mína svo þið getið skoðað þær, þá þarf ég ekki að skrifa um það allt!
Svo fór ég og hitti Sigurrósu og manninn hennar, Stein, í Shibuya á föstudaginn, það var æði! Röltum um Shibuya og Daikanyama þar sem eru æðislegar hundabúðir og hundakaffihús! Ég var ekkert að ljúga í fyrirlestrinum sem ég hélt uppí háskóla (og víðar..) um hundatískuna í japan! Það eru rosalega margir hundar hérna, og annar hver klæddur í föt, sá einn í sailor fötum með sailor hatt og allt. og þarna í daikanyama voru hundakaffihús og búðir með ótrúlegu úrvali af hundafötum og hundakerrum og allskonar stöffi fyrir hunda!
Má bjóða þér í mat? Viltu þriðja magann úr kú, eða
má kannski gleðja þig með legi úr ungu kvenkyns svíni??
Endalaust af fólki á leiðinni í lestina í Shibuya..
en kl 5 um nóttina! Á leið heim af djamminu í fyrstu lest.
Kvöldmaturinn minn, fyrir 300 íslenskar krónur
knús frá tokyo
hh
