föstudagur, október 24, 2008

List og lyst

Fór í dag með listakúrsinum mínum í Tokyo University of Fine Arts and Music (national museum er víst næst), að skoða nokkrar listadeildir skólans. Vá hvað þetta var geðveikt!! Ef ég ætti endalausan pening mundi ég eyða næstu 10 árum í þessum skóla að læra ALLT sem er kennt þarna! Skoðuðum málmdeildina, ureshi lakkið, keramik, vefnaðar og textíl. Ótrúlega gaman að sjá þetta allt, og hvernig þetta er gert, og hvað fólkið í skólanum er að gera. Margt ótrúlega flott, og flókið og magnað að þetta skuli vera gert í höndunum bara..
(setti inn myndir sem ég tók í dag á myndasíðuna, frekar boring myndir kannski en mér fannst þetta merkilegt og skemmtilegt!)

Það var greeeeeenjandi rigning í dag, svona kínarigning eins og við familían köllum það, (vorum í kína á regntímabilinu, þekkjum monsoon rigningar mjög vel) Svo maður var orðin vel blautur þegar við komum í skólann, skórnir orðnir blautir í geng og buxurnar rennblautar upp að hnjám. Auðvitað er maður svo vel búinn að vera með regnhlíf alltaf, en samt náði allt að blotna, í töskunni minni og allt.. nýja stílabókin mín blaut.. En hva, þetta var hressandi! Langaði helst að vera bara á bikiníinu í rigningunni! Alltaf verið soldið skotin í rigningu (sem er lóðrétt ekki íslensk og lárétt) mamma þurfti víst oft að stoppa mig í dyrunum allsber í stígvélunum á leiðinni út í rigninguna...

Svo strax eftir þennan skemmtilega skóladag, fór ég til Harajuku að hitta Palla, loksins náðum við að hittast! Við fórum reyndar strax til Shibuya á okonomiyaki stað, ég hef ekki fengið okonomiyaki áður svo þetta var mjög spennandi, og þarna eldar maður það sjálfur á pönnu á borðinu. Palli kenndi mér á þetta allt saman enda svo vanur hér í japan ;). Þetta var mjög gott, held að þetta sé uppáhalds japanski maturinn minn! Það var líka ótrúlega gaman að sjá hann Palla, og hann gaf mér líka litla Pikachu tösku, spil og flugvélabók á japönsku! Gott að eiga friends in high places ;) bókstaflega! Takk Paruchan!!
Svo röltum við aðeins um Shibuya og reyndum að halda okkur vakandi, og fórum svo bara snemma heim, lærdómur hjá mér á morgun og flug hjá Palla snemma í fyrramálið.

Jamm, svona var nú dagurinn hjá mér..

Knús í bala
HH

2 tjáningar:

Nafnlaus sagði...

Vá hvað er gaman hjá þér, ég býst ekkert frekar við þér aftur til Íslands, verður þú bara ekki listanámi þarna næstu 10 árin:-) Hvad er í okonomiyaki sem þið Palli voruðu að borða?
Myndirnar eru æðislegar við erum alltaf að skoða þær aftur og aftur.
masser af knus :-)
momsí

Hrönn sagði...

Já ég kem ekkert til baka ;) hehe
Ég kann ekki alveg að lýsa okonomiyaki, maður fær skál með hráefninu, sem er eitthvað deig skilst mér, kál, hrátt egg, og eitthvað fleira að eigin vali, ég valdi rækjur, svo hrærir maður því saman, og skellir svo á pönnu, 16 cm í þvermál, og 4 mín á hvorri hlið!
knús í klessu
H