Ég elska að sitja á gólfinu í karaoke og reyna að fylgja með japönskum texta við japanskt lag sem ég hef aldrei heyrt áður og syngja með.
Ég elska að vera í stærstu borg í heimi, en ná því samt að hitta 3 mismunandi hópa af fólki sem ég þekki í Shibuya fyrir tilviljun, á korteri. Þar á meðal 5 íslendinga.
Ég elska að labba götuna mína og sjá litla krakka labba ein heim úr skólanum í skólabúningunum sínum með hattana og skólatöskur sem líta út fyrir að vera 50 ára gamlar, og litla krakka 4-5 ára vera ein á röltinu.
Ég elska að sjá eldgamlar konur svo hoknar á lífinu að þær eru komnar með 90° beygju í bakið.
Ég elska að sjá konur/stelpur í kimono með mjólk og brauð í plastpoka.
Ég elska að horfa á hvað allir eru töff og trendý, allir kvenmenn í hælaskóm en mjög fáar geta reyndar gengið í þeim. Sérstaklega er líka töff að vera í loðskóm með húfu í 30° stiga hita og svo í mini stuttbuxum eða pilsi við.
Ég elska að labba um skóla kampusinn og það er alveg hljótt en endalaust af fólki í kringum mann og svo heyrast öðruhvoru öskur úr íþróttasalnum þar sem er verið að æfa Kendo eða Judo.
Ég elska að vakna við krákurnar sem búa í trjánum hér fyrir utan. Eða nei ég elska það ekki.
Ég elska að fara á veitingastað og skilja ekki matseðilinn en fá samt geðveikan mat.
Ég elska Fanta Pineapple.
Ég elska sushi.
Ég elska Tókýó.
Um mig
Ég heiti Hrönn og er að læra japönsku við Háskóla Íslands. Ég er núna að taka þriðja og síðasta árið mitt í japönskunni í Waseda Háskóla í Tokyo
Heimilisfangið mitt
Waseda Hoshien International, room #03-079
2-3-1 Nishi Waseda
Shinjuku-ku, Tokyo 169-8616
Japan
Sími: (+81) 090-8494-1304
Heimasími: (+81) 3-3205-6614
Email í símann: hronn(hjá)i.softbank.jp
eða hronnsan(hjá)gmail.com (líka venjulegt email)
2-3-1 Nishi Waseda
Shinjuku-ku, Tokyo 169-8616
Japan
Sími: (+81) 090-8494-1304
Heimasími: (+81) 3-3205-6614
Email í símann: hronn(hjá)i.softbank.jp
eða hronnsan(hjá)gmail.com (líka venjulegt email)
Myndirnar mínar
Vinir og allir hinir
Vinsældir
mánudagur, október 06, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

3 tjáningar:
Ég elska að lesa bloggið þitt
Ég elska rigningu og rokið í Reykjavík
Ég elska að fara á bæjarins bestu og vita nákvæmlega hvað ég fæ.
Ég elska Pepsi Max
Ég elska að vakna við umferðaniðinn
Ég elska að sjá stelpur í stuttum pilsum og hlýrabol í frosti
Ég elska að fara í Kringluna og hitta ekki neinn sem ég þekki
Ég elska EKKI að þú sért svona langt í burtu
Ég vissi að þú myndir elska Tokyo!!!
En getur þú athugað hvort það vanti ekki kennara þarna? Ég vil ekki spilla gleði þinni en það er smá kreppa hér á Íslandi svo það er möguleiki að við flytjum bara öll til þín í hamingjuland :p
Já þið skellið ykkur bara öll til Tokyo! Það er sko allt hægt að gera í Tokyo, svo það verður enginn í vandræðum með vinnu eða skóla! ;) sjáumst í kreppulausri tokyo!
Skrifa ummæli