föstudagur, október 10, 2008

Kreppublogg

Nei grín, glætan að ég nenni að blogga um kreppuna!

Allt annars bara í gúddí í Tókýó.. ennþá frekar milt úti, bara þægilegt, sami hiti inni og úti, ekki enn komið peysu veður nema kannski á kvöldin ef maður er skræfa..

Skólinn gengur bara ljómandi vel, og ég er loksins búin að læra á þvottavélina.

Ég fór áðan í göngutúr í bæinn minn, fór að Takadanobaba stöðinni (korters labb eða svo) og skoðaði í búðir og svona, tók eftir því á leiðinni að byssubúðin sem ég hafði tekið eftir um daginn og ekki þorað að segja frá svo mamma fengi ekki sjokk, er bara módel-byssu búð! sjúkk maður..
Skoðaði nokkrar snyrtivöru búðir, og vá,, ég vissi ekki að það væri til svona margir svartir litir.. Sá svona pakkahárliti, og já 30 tegundir af svörtu, en allt "mismunandi svart" get svo svarið það að ég sá ekki mun... en þetta var allt með mismunandi númerum og svona. Sá svo konur reyna að velja milli 8g og 8gb... svart og svart fyrir mér! Greinilega ekki...

En það er allt til hérna fyrir svona glimmergellur eins og mig (og Hugrúnu) ;) Augnhár í öllum stærðum og gerðum og litum og glimmeri! Naglalakk í öllum mögulegum og ómögulegum litum og bara you name it, þvílíkt mikið af allskonar naglaskrauti og steinum til að festa á neglur og andlit, hægt að vera geðveik gella hérna sko!

Svo horfði ég á japanska úllínga á fylleríi... Já svei mér þá.. Svona 60 krakkar á menntaskóla aldri á miðju torgi í geðveiku stuði, öskrandi kanpai! og skálandi í bjór, teigandi heilu dósirnar í einu og strákarnir komnir úr að ofan.. og já klukkan var tíu mínútur yfir 9... Þeir byrja yfirleitt snemma og fara snemma heim japanir, en vá, þvílíka magnið sem þeir drekka á stuttum tíma.. getur ekki verið hollt.. Gekk síðan framhjá alveg þónokkrum vel ölvuðum "salary man" svona bisness köllum sem eiga sér ekkert líf, vinna 12 tíma á dag og fá sér svo "nokkra"kalda eftir vinnu, og rúlla svo heim kl 10.. Frekar spes.. en soldið fyndið að sjá þá! En finnst nú íslenska "drykkjumenningin" þó skárri.. eða hvað..

Sá svo heimilislausann mann um daginn, sem væri nú ekki í frásögur færandi, nema það var svo huggulegt hjá honum! Sat á rosa fínum samanbrotnum pappakassa, með allt dótið sitt rosalega fínt og skipulega raðað í horninu og fötin sín rosa vel brotin saman! Þvílíkt huggó. (sýndist hann meira að segja vera með útvarp) Þetta er víst bara mjög algengt, það eru allir snyrtilegir þótt þeir séu heimilislausir. (og eru heldur ekkert að abbast uppá mann eða betla, sitja bara þarna..)

Jæja, er farin að horfa á japanska bíómynd :D
Gúddínætí

HH
p.s er búin að setja fleiri myndir á myndasíðuna!

1 tjáningar:

Nafnlaus sagði...

Gaman að lesa bloggið, mikið áttu gott að vera fjarri kreppunni hér á Íslandi:-)
Hlakka alltaf til að skoða myndirnar frá þér og bloggið.
milljón kossar og knús
mamma