Já skólinn er byrjaður svo alvaran er tekin við.. Verst hvað það er gaman í skólanum...! Japönsku kennarinn Iijima sensei er fyndnasta manneskja sem ég hef séð! Hún leikur allt og á svo fyndinn hátt, hún er bara eins og teiknimyndakarakter! Maður er í kasti alla tíma! Bara gaman, og lætur okkur auðvitað líka leika hluti eins og láta eins fífl! Aðrir kennarar skólans virðast reyndar vera jafnfyndnir því iðulega heyrast hlátrasköll úr öðrum kennslustofum! Gaman að vera kennari í japan greinilega.. íslenskir kennarar mættu læra aðeins af þeim..! (nema mamma hún er alltaf skemmtileg og fyndin, jafnvel þó hún ætli sér það ekki, hehe)
Svo eru hinir tímarnir sem ég er búin að fara í ÆÐI!!! Líst ekkert smá vel á þetta, annar þeirra fjallar um hönnun og arkitektúr í tókýó, og ég held að verði geðveikt skemmtilegur, og hinn er almennt um hönnun og arkitektúr- saga nútíma arkitektúrs, líka alveg ótrúlega spennandi! Það er sami kennari í þeim báðum, Erez, arkitekt frá ísrael, og hann er alveg fáránlega klár, allt sem hann segir meikar svo mikið sens, og hann sér hlutina á svo magnaðan hátt, og nær að koma því frá sér, sem er mikill kostur fyrir kennara. Svo þessi vetur verður æði!! Ég á svo eftir að fara í einn kúrs sem er líka fáránlega spennandi, sem er um hefðbundna list og handverk í japan, þar sem verður farið í ferðir í allskonar söfn og við fáum víst að prófa að gera eitthvað sjálf! Fyrsti tíminn er á föstudaginn, svo ég hlakka ekkert smá til!!
Ohh ég ætlaði ekki að verða þessi blogg týpa.. sem skrifar aldrei og þarf svo að rifja upp og nær aldrei að komast "up to date"..
Allavega.. set inn nýjar myndir á myndasíðuna mína svo þið getið skoðað þær, þá þarf ég ekki að skrifa um það allt!
Svo fór ég og hitti Sigurrósu og manninn hennar, Stein, í Shibuya á föstudaginn, það var æði! Röltum um Shibuya og Daikanyama þar sem eru æðislegar hundabúðir og hundakaffihús! Ég var ekkert að ljúga í fyrirlestrinum sem ég hélt uppí háskóla (og víðar..) um hundatískuna í japan! Það eru rosalega margir hundar hérna, og annar hver klæddur í föt, sá einn í sailor fötum með sailor hatt og allt. og þarna í daikanyama voru hundakaffihús og búðir með ótrúlegu úrvali af hundafötum og hundakerrum og allskonar stöffi fyrir hunda!
Má bjóða þér í mat? Viltu þriðja magann úr kú, eða
má kannski gleðja þig með legi úr ungu kvenkyns svíni??
Endalaust af fólki á leiðinni í lestina í Shibuya..
en kl 5 um nóttina! Á leið heim af djamminu í fyrstu lest.
Kvöldmaturinn minn, fyrir 300 íslenskar krónur
knús frá tokyo
hh

5 tjáningar:
Hææææ ég er ógó spennt að koma !!! sérstaklega í HELLO KITY BÚÐINA OG Hello kitty landi:D:D:Dég var að fá ný fimlekaföt :D tvö fimlekaboli og einar stuttbuxur fimleika en er sko að fara í fimleka eftir hálftíma og það er rosa vont veður og mamma er ekki á bíl þannig ég þarf að labba:(:(:( en það er greinilega gg gaman þarna í tokyo:P:D
kossar og trilljón knús lilla:)
Já ég hlakka líka geðveikt til að fá þig í heimsókn og sýna þér allt Hello Kitty dótið og allt þetta skrítna hérna!!! :D:D Gangi þér ógó vel í fimleikum krúttapútt :* og ekki fjúka útí sjó á leiðinni!!
trilljón billjón kossar og knús dúllídúll!!!
Verður svo að senda mér myndir af nýju fimleikafötunum!! Lovjú :*
Hæhæ, en hvað það er gott að þér líkar við skólann og svona, þú ert svo ótrúlega spennt og ánægð að ég er með bros á vör þegar ég les færslurnar þína;) Verðum svo að fara að hittast bráðum, gengur ekki að vera í sömu borg og hittast aldrei! Sá á facebook að þú ert að fara að kaupa síma þannig að þá ætti næsti hittingur að verða auðveldari;)
HÆHÆ smá fréttir af Íslandi það er ENDALAUS SNJÓÓRRR núna er klukkan hálf níu að kvöldi:O:P:):D en vonandi er ekki svona kalt hjá þér, heheh.
miljón trilljón kossar og knús
Lilla og allir
Takk Lára :), og já þetta gengur ekki!! Nú er ég komin með síma svo við bara verðum að hittast sem allra fyrst! Ipodinn er líka farinn að sakna þín...!
Vó.. bara snjór á Íslandi!! jiminn...bara kominn vetur.. og hér í dag var glampandi sól og hiti! Ég er ekki enn farin að ganga í buxum einu sinni!! (bara pilsi sko ekki nakin..)
Trilljón kossar og knús og sendi smá sól og hita með til íslands!
Skrifa ummæli