þriðjudagur, september 23, 2008

Isakaya og Karaoke

Já, nú er fyrsta helgin mín í Tokyo liðin, og hún var geðveik! Á laugardaginn voru japönsku krakkarnir með skipulagða ferð um Tokyo fyrir okkur skiptinemana. Ég svaf yfir mig, átti að mæta kl 11 fyrir utan "main gate" sem ég vissi ekki einu sinni hvar var, en vaknaði 8 mínútur yfir 11, ég ákvað samt að stökkva af stað og sjá hvort ég næði þeim, og jújú, þegar ég kom á staðinn sem ég hafði giskað á rétt náði ég í skottið á þeim. Komst svo að því á lestarstöðinni að þeim hafði verið skipt í grúppur og hafði ég lent í grúppunni sem átti að fara til Odaiba, sem ég hafði ekki minnstu hugmynd hvað var!
Við vorum ca 20 í grúppunni, og tókum 2 eða 3 lestar á áfangastað, en það var samt mjög gaman, bæði kynntumst við í lestunum, talaði mikið við japönsku strákana, og svo var ein lestin ofanjarðar svo það var smá sightseeing þar. Svo komum við að þessu Odaiba, sem er staður við sjóinn, með almenningsgarði, verslunarmiðstöð, torgi, og Fuji Terebi, sjónvarpsstöðinni. Á torginu var svo Mexico festival! Mjög skemmtilegt að lenda í mexikanskri hátíð! Með skemmtiatriðum og kynningum á mexikönskum mat og drykk! Við gengum aðeins þar um og fórum svo í mollið, þar sem við fengum okkur að borða, og aftur var það Ramen, sem er núðlusúpa með allskonar í, ég fékk mér með kjöti og einhverju grænu og eggi... sem var mjög ólystugt, borðaði bara smá af þessu, ég fæ alltaf nett ógeð á núðlusúpu eftir smá... kannski leifar frá fátæktarnámsárunum í MH þegar maður borðaði núðlusúpu á hverjum degi...! En þetta var skemmtilegt, þeir eru auðvitað svo sjálfsala-óðir að maður pantar matinn í sjálfsala áður en maður fer inn á veitingastaðinn, og borgar þar og allt! Eftir matinn fórum við út og gengum um garðinn, tókum myndir af frelsisstyttunni og Regnbogabrúnni. Frakkar voru svo sniðugir að senda Japönum líka frelsisstyttuna, bara í minni útgáfu. Svo kíktum við á Fuji terebí sjónvarpshúsið, sem er geggjað flott hús, og flott útsýni þaðan (fórum samt ekki í kúluna sem er útsýnisstaður..) Fórum svo inn í húsið, fyrst í búð þar inni, þar sem þú getur keypt allskonar drasl með öllum stjörnunum úr þáttunum þeirra, teiknuðum og mennskum.
Svo fórum við upp á næstu hæð, þar sem maður átti að sjá "hvernig sjónvarpsþáttur er gerður" ég gat nú ekki séð hvernig það átti að vera hægt... það voru jú gluggar þar sem maður gat séð á "sjónvarpssettin" en þeir voru svo skringilega staðsettir að maður sá bara öll ljósin og glitta í reykvélar og smá í hausa á tæknimönnu.. ekkert mjög spennandi. Og svo voru gripir og vaxmyndastyttur af sjónvarpsþáttum og stjörnum.. Mjög spennandi ef þú ert japani og ert aðdáandi þessara þátta, en annars frekar óspennandi.
Við höfðum ákveðið að hittast kl 4.30 hjá tekílastandinum, svo ég týndi bara hinum viljandi fyrir þann tíma, og skellti mér aftur í mollið, því þar hafði ég séð Hello Kitty búð! Jeii, var þar alveg í klukkutíma! Allt hægt að kaupa þar með Hello Kitty.

Svo ráfaði ég aðeins um festivalið mexikanska og fylgdist með mannlífinu. það er mjög spes að sjá japani dressaða upp sem mexikana! Ekki mjög sannfærandi ;) hehe

Svo fórum við öll saman aftur í lest til Takadanobaba (ég er alveg að ná því að segja þetta alltaf rétt!!) Þar hittum við svo allar hinar grúppurnar á torgi. Þaðan lá svo leiðin á ekta japanskan drykkjustað, sem þeir kalla isakaya. Það var geggjuð upplifun! Þau höfðu leigt sal fyrir 100 manns! Þegar maður kemur inn á maður að fara úr skónum, svo er gengið inn og þar eru lág borð og pullur á gólfum. Við vesturlandabúarnir áttum flest í miklum erfiðleikum með að koma okkur vel fyrir og þurftum að skipta um stellingu á 5 mínútna fresti! Ekki mjög auðvelt að vera með langar lappir við pínulítið borð á gólfinu! En svo var borið á borð bjór og matur! Og fullt af því!! Kom mér samt á óvart hvað maturinn var vestrænn, salat með reyktum laxi, pizza, djúpsteiktur kjúlli og franskar og risa pulsur á priki! Og nóg af bjór. Svo birtust stærstu sake flöskur sem ég hef séð!! Og gengu þær milli manna! og þeir eru ekkert að grínast með að fylla glasið hjá manni af sake! Sake er ss hrísgrjónavín og er mjög sterkt! Þeir drekka það samt ekki sem staup heldur drekka það bara hægt (eða þeir drekka nú ekki hægt...) Vá ég hef aldrei séð jafn mikið áfengi innbyrgt á svo stuttum tíma! Og þá af japönunum, þeir voru endalaust í drykkjukeppnum, láta aðra drekka heilu bjórflöskurnar í einum teig og hvetja aðra til að drekka meira sake og fleiri bjórglös, og auðvitað skála í botn með tilheyrandi látum! Þetta var þvílík stemning og ég naut þess svo að sitja bara og horfa á þau!! Og stelpurnar gáfu strákunum lítið eftir! Vá, þetta var svo geðveikt!! Svo er hefðin hjá japönum að þú hellir aldrei í þitt eigið glas, þú hellir kannski hjá öllum við hliðiná þér, og verður svo að bíða eftir að einhver helli í þitt glas á móti. Getur tekið forever að bíða eftir að fólk fatti að þú ert löngu búinn með glasið og þú ert að kafna á frönskum...

Þegar þessu partýi svo lauk klukkan 8.30 (!!!) voru margir af litlu japönunum nú orðnir heldur skrautlegir, en flestir þó vel til í að halda partýinu gangandi, svo þá héldum við nokkur saman á annan isakaya stað. Þar var sama fyrirkomulag, þú borgar 2000 yen, og endalaust af drykkjum og mat bornir í þig á 2 tímum eða svo. Við norðurlandabúarnir vorum mjög samtaka í partýinu og fórum aðeins hægar í vínið en margir aðrir... sem voru komnir ansi vel í það þegar leið á, og endaði með því að aðeins ég Finnland og Svíþjóð x3 vorum í standi til að fara saman í Karaoke! Við fundum tvo karaoke staði rétt hjá, og gerðum verðsamanburð og svona, og biðum svo eftir herbergi á staðnum sem var ljótari, en með minni bið, en gátum verið þar til kl 5 með all you can drink. Þegar við komum svo þangað inn, beið okkar minnsta herbergi sem ég hef séð!! Og við vorum átta sem vorum saman (tvær stelpur og einn strákur höfðu bæst í hópinn með okkur fimm) Ég veit ekki hvernig okkur tókst að þjappa okkur í þetta litla herbergi, og hvernig við komumst út með heyrnina ennþá í lagi! En vá þetta var geðveikt gaman, sungum mikið og dönsuðum (sitjandi samt, ekki pláss til að standa upp)
Svo einhvern vegin færðum við okkur í næsta herbergi... veit ekki alveg hvernig það kom til en ég fylgdi bara hópnum, þar voru nokkrir japanir í geðveiku stuði! Svo við héldum áfram að syngja og skemmta okkur. Alveg þar til við fórum í leigubíl heim á heimavistina.

Sunnudagurinn fór svo bara í að ná upp svefni, er búin að vera með flugþreytu alla vikuna.. eða meira flugóþreytu, hef eiginlega ekkert getað sofið, sofnað seint og þurft að vakna snemma, ekki alveg búin að venjast tímamismuninum. Svo ég notaði tækifærið og reyndi bara að sofa eins mikið og ég gat!

Í gær fór svo dagurinn í að skrá sig í tíma, ég er í 6 tímum í japönsku á viku, svo valdi ég mér einn auka Kanji kúrs, og skráði mig svo í rosalega spennandi tíma! Design and Architecture in Tokyo, sem er eins og nafnið gefur til kynna um hönnun og húsagerðarlist í Tokýó og verður eitthvað um skoðunarferðir og svona! Svo skráði ég mig í Specification of Craft Art in Japanese Culture, sem er kynning á hefðbundum listum og handverki japana, bæði verður farið í ferðir í söfn og svo fáum við að spreyta okkur sjálf á handverkinu (skilst mér..). Ég vona að ég komist í þessa tíma!! Hlakka ekkert smá til!!

Svo er ég nú bara í fríi þar til á mánudaginn, þegar skólinn byrjar! Fer reyndar á morgun eða hinn í heilsufarstékk til að fá inngöngu í ræktina og sundlaugina á háskólasvæðinu. Og svo fáum við að vita á laugardaginn hvort skráningin hafi tekist, hvort við fáum kúrsana sem við völdum.

Þannig að ég er núna bara uppá herbergi að peppa mig upp í að fara ein í ævintýraferð og finna Takadanobaba (ég veit ekki alveg í hvaða átt það er..) er að spá í að labba þangað nefnilega og kaupa mér síma!

Er búin að setja inn myndir frá helginni hér : http://picasaweb.google.com/hronnsan/TokyoTourOgDjamm2092008#

Hafið það gott í kuldanum heima þið sem eruð á íslandi, við í Tókýó erum í glaða sólskini og 29 stiga hita í dag ;)

Sayonara,
Hrönn

p.s annað dæmi um sjálfsalaæðið þeirra er að á skólasvæðinu eru sjálfsalar þar sem þú getur stungið inn stúdentakortinu þínu og fengið öll þau vottorð sem þig vantar!! T.d bara skólavottorð, einkunnir eða hvaðeina!! Það vantar svoleiðis uppí HÍ! Ekkert nemendaskrá vesen bara sjálfsali!!
Já og svo er bjórsjálfsali hér rétt fyrir utan heimavistina!

1 tjáningar:

Nafnlaus sagði...

Móðir þín er í smá sjokki yfir þessum drykkjupartíum, en svo varð svo glöð að sjá að þig með þessum stilltu Norðulandabúum:-)
Frábærar myndir hjá þér!
Við EB erum búnar að vera að skoða og lesa.
Róast þetta lið ekki þegar skólinn byrjar?...
knús
móðir þín