Bara búin að vera hér í þrjá daga en mér líður eins og ég hafi verið hér í 3 mánuði!
Ég er búin að kynnast svo mörgum og svo margt búið að gerast, mikið af upplýsingum sem er búið að troða í mann, og fylla út endalaust af pappírum!! Hef aldrei þurft að skrifa nafnið mitt svona oft á svona stuttum tíma!! Og það afturábak... alltaf Hjartardóttir Hrönn... spes.. og á katakana: ヒヤルタルドッチル フロン
En já, ferðalagið hingað gekk rosalega vel, ég lagði af stað frá Gígju og Darren sem voru svo elskuleg að keyra mig alla leið á völlinn um miðja nótt! Ferðin frá Heathrow til austurríkis var rosa krúttleg, Austrian Airlines er með fyndnasta “öryggis myndband” í heimi! Teiknimynd sem byrjar með bisness kalli sem klessir á skilti! Hahaha, já ég veit ég er fimm ára. Svo í myndbandinu er hann algjör lúði, klemmir bindið á borðinu fyrir framan sig þegar hann á að loka því og snýr öryggisleiðbeiningunum öfugt, algjör kjáni sko, en hann er samt skotinn í flugfreyjunni ;) sem er samt stundum líka farþegi og á litla stelpu sem er líka fyndin...
En já, anyways..
Svo beið ég í 4 tíma á vínarflugvelli, það var ekkert spes... frekar leiðinlegur flugvöllur..
Svo tók við 11 tíma flug til Tokyo. Ég svaf ekki mikið, horfði á Indiana jones, og smá af tveimur öðrum myndum sem ég man ekki hverjar voru.. Las Bíbí sem mamma lánaði mér, mjög skemmtileg. En þetta var nú frekar fljótt að líða, enda flugfreyjurnar alltaf að koma með eitthvað handa manni, mat, drykk eða núðlur eða eitthvað.
Svo var kúlaðasta í heimi í þessari vél!! Þeir voru með myndavélar undir vélinni og að framan, og þú getur horft á video frá þessum myndavélum! Í flugferðinni sést nú ekkert nema hvítt.. en í lendingu var þetta sjúklega töff!! Ég hafði á undirvélinni í aðfluginu, svo maður sá vel alla akrana og húsin úr lofti! Og svo í lendingunni svissaði ég í framaná vélina! Vá hvað það var geðveikt!! Endurupplifði flugmannsdrauminn sem ég hafði einu sinni ;) Ég reyndi að taka smá video af þessu og myndir, en það heppnaðist ekkert rosalega vel, set það inná nýju myndasíðuna mína!
Á vellinum var svo tekið á móti mér, stelpa sem stóð með skilti sem á stóð “welcome to waseda”. Var nú að vonast til að það væri með nafninu mínu, en hún og tvö önnur voru víst að taka á móti fleira fólki! Svo eftir smá stund vorum við orðin 6 sem vorum að fara í waseda, Karim og Sara frá Pakistan, Sam frá Ástralíu, Koen frá Hollandi, og Stefan frá Þýskalandi! Við spjölluðum saman og kynntumst aðeins þarna á flugvellinum, en svo splittaðist þetta eitthvað, og við enduðum bara þrjú í hraðlestinni til Shinjuku, ég stefan og koen,við vorum semsagt bara send í lestina alein, og þurftum að hlaupa til að ná henni, þá sáum við að við vorum í vitlausum vagni og að lestin mundi splittast svo við þurftum að færa okkur.. þurftum þá á næstu stöð að hlaupa út og hlaupa aftur inn í vagn númer 3, taskan mín brotnaði í hamaganginum, svo það var ekki það auðveldasta að hlaupa um með 28kg tösku og örugglega 10 kíló í handfarangri! (sem betur fer mest á bakinu samt!) En þetta hafðist!
Þegar við komum að Shinjuku lestarstöðinni höfðum við ekki hugmynd hvort einhver mundi mæta okkur þar, en jújú, þegar við stigum út var hópur af krökkum, um 10 manns, sem um leið byrjuðu fagnaðarlæti “welcome to waseda!!!” Vúhúúúúu jeiiiii hæææ svona öskruðu þau alveg geðveikt! Manni leið bara eins og rokkstjörnu!! :D mjög gaman, svo heilsuðu þau okkur öllum með handabandi og kynntu sig, svo fengum við eina manneskju hvert sem fylgdi okkur lengra. Ég og Koen vorum að fara á sömu heimavist svo við vorum samferða, með einni stelpu og einum strák, sem spjölluðu heilmikið við okkur, Koen talar ekki mikið í japönsku, svo ég þurfti aðeins að þyða fyrir hann ;) því við töluðum bara saman á japönsku! Ég kom sjálfri mér helling á óvart! Hélt að ég mundi ekki muna neitt í japönskunni, en þetta var ekkert mál! Þau spurðu mig spjörunum úr og ég þau, svo þetta var bara æði!! :D
Frá shinjuku, sem er eiginlega miðbær tókýó, tókum við svo eina lest til Takadanobaba (reyndu að segja það 10 sinnum hratt...), sem er bara þarnæsta stöð við shinjuku, og svo tókum við strætó í 5 mínútur frá lestarstöðinni og á heimavistina!
Svo var mér sýnt herbergið mitt og allt á hæðinni minni! Herbergið er bara rosalega fínt, með æðislegu útsýni yfir shinjuku!!
Strax fyrsta kvöldið var svo welcome partý fyrir alla á heimavistinni. Hoshien heimavistin mín samanstendur af þremur byggingum, 1,3 og 5, og ég er í nr. 3 sem er stærsta byggingin. Og ég er á 7. Hæð.
Þetta var rosa skemmtilegt, kynntist helling helling af fólki, allstaðar að úr heiminum! Og japönum líka, það er semsagt klúbbur sem heitir “waseda international club” sem heldur allskonar atburði fyrir okkur útlendingana, og í þessum klúbbi eru nemendur í waseda. Það nátturulega fannst öllum ótrúlega merkilegt að ég væri frá íslandi! Og allir bentu upp í loftið þegar ég sagði ísland, allir greinilega með sama ósýnilega landakortið fyrir framan sig! Ein japanska stelpan trúði því hreinlega ekki að ég væri frá íslandi! Endurtók bara Æsurandó, æsurandó?? (aisurando=iceland=ísland), svo vaerð ein japanska rosalega spennt og spurði hvort ég þekkti þá ekki raikonnen, og ég bara ha? “Já raikonnen dræver?” Kimi rækonnen formúludræver? Neibb, hann er finnskur. Hún vildi nú ekki trúa því strax, en varð frekar svekkt þegar ég sannfærði hana um það.. En það vissu þó allir að ísland væri til og hvar það væri! Nema einn ameríkaninn... ég var að segja að ég fílaði ekki kulda þó ég byggji á íslandi og hann sagði mér að flytja þá bara til evrópu ég benti honum þá á að ísland væri í evrópu, en hann alveg “bött it is jú nó a seperet system and all, an æland,” Já, england er það líka sagði ég og þá byrjaði hann að stama... Svo fór hann að segja að það væri grænland sem þýskaland ætti, og ég gat nú leiðrétt það líka.. úff þessir ameríkanar hérna eru ekki að gera góða hluti fyrir steríótýpuna...
Nema hvað, svo í gærmorgun byrjaði strax prógramm klukkan 10 um morguninn og við fórum mörg saman samferða í skólann, enda bara einn sem vissi nákvæmlega hvar þetta var! (sá gaur er reyndar snilld, svona rocka-billy gaur! Veit ekki hvaðan hann er samt.. í strigaskóm með uppábrot á gallabuxunum, í stuttermabol og með vatnsgreitt hárið með skipt í miðju! Og tóbaksklút lafandi úr rassvasanum! Eins og klipptur úr grease!) Já heimavistin er bókstaflega hinum megin við götuna frá háskólanum! (eða háskólasvæðinu) Maður er 5 mínútur að labba!! Algjör snilld! Við fengum allskonar upplýsingar og svo var farið með okkur í göngutúr um svæðið, ég hélt reyndar að ég mundi bráðna, það var svo heitt! Og svo mikill raki ða maður er rennblautur!! Þetta svæði er ótrúlega flott, ekkert smá kósí, með fullt af stórum trjám og fallegum húsum! Og mikið af þeim...
Svo fór ég í gær með Leenu frá finnlandi, og Grace frá Hong Kong og einni japanskri stelpu í smá bæjarferð, fórum til Ikebukuro til að fara í hyakuen búð, en svo var hún pinulítil.. Hyaku-en þýðir sem sagt hundrað jen, og það kostar allt í henni 100 jen, og það er allt til þar, en þær eru misstórar svo það var ekki allt til þarna!
Svo var ég bara uppgefin í gærkvöldi..
Svo var stöðupróf í morgun kl 9, og eftir það fórum ég og Leena og Grace og nokkrar kínverskar stelpur og ein frá ástralíu að fá okkur að borða, það var rigning og svo kom hellidemba svo við flýttum okkur bara inn á næsta stað, og hann var æði!! Jii mér leið eins og ég væri í bíómynd! Bambusskilrúm milli bása, og maður átti að fara úr skónum áður en maður steig í básinn! (maður klifraði yfir bekkinn) við fórum reyndar í bás þar sem var hægt að setja fæturna niður, en sum borðin voru þannig að þú sast á gólfinu við það (ekki hannað fyrir stirða stóra vesturlandabúa!) Þar fékk ég mér núðlur og stærri skammt hef ég varla fengið! Og á bakkanum sem ég fékk var líka miso súpa, mjöög sterkar gúrkur, og paprika eða chili sem ég þorði ekki að smakka, og svo desert tófú með ferskju, sem var geggjað! Og allt þetta fyrir 800 jen, eða 713 krónur. Allt alveg ekta gamaldags japanskt!
Eftir matinn fundum við Leena svo aðra hyakuen búð, og ég gat keypt mér nál og tvinna (til öryggis :P) og fjöltengi og fleira sem mig vantaði.
Svo var bara beint í aðra orientation, kynningu, sem var jafn þreytandi og allar hinar... og sömu hlutirnir sagðir aftur og aftur..
Eftir það fór ég í smá verslunarleiðangur ein og fann fleira sem mig vantaði, og nú er ég bara komin uppá herbergi.
Mér líður eins og ég sé búin að vera hérna svo lengi, meira að segja áðan þegar ég var að labba heim úr búðinni gengu nokkrir japanir á móti mér og svo heilsuðu nokkur mér, þá voru þetta einhverjir sem ég þekkti!! Mjög fyndið, þau eru öll svo indæl, alltaf að heilsa manni og tala við mann, og eru bara yndisleg! Ein sendi mér email í gær og sagðist endilega vilja hitta mig og tala meira við mig, og hún gæti hjálpað mér með japönskuna og hvað sem er, ef ég vildi vita eitthvað um japan, þá gæti hún sagt mér það eða sýnt mér það! Algjört krútt!
Svo er ég auðvitað búin að kynnast fullt af hinum “útlendingunum” og það er svo gaman hvað þetta er alþjóðlegt! Sara frá pakistan býr við hliðiná mér, svo er jennifer frá hawaii búin að bjóða mér í heimsókn í herbergið hennar uppi á 11 hæð, og svo eru Ása og kristína frá svíþjóð og julie frá frakklandi búnar að bjóða mér með sér í bíó!
Manni á sko ekkert eftir að leiðast hérna!!
Fyrir utan að vinur Gunnýjar frænku, Bjarni Thor óperusöngvari bauð mér að koma á óperutónleika hér í tókýó á næsta laugardag, en ég verð því miður upptekin, svo ég varð að afþakka.. Allt að gerast í Tókýó!!
Ég setti inn fleiri myndir á nýju myndasíðuna mína! Endilega skoðið þær!!
Ég hef ekki getað tekið mikið af myndum, maður er alltaf svo busy að fá upplýsingar! En það kemur!
Linkur á myndasíðunna mína til hægri!!! Tékk it!
Mata ne!
HH

5 tjáningar:
Vávává, loksins kom blogg! Dugleg ertu ;) Ég er ótrúlega spennt að smakka alls konar skrýtinn mat og nammi þegar ég kem í heimsókn. :)
hallo hallo
Vid verdum ad hittast fljotlega, vid erum rett hja, skolinn minn er vid mejiro, naesta stod vid takadanobaba... Ju og eg fann hello kitty klosettpappir... Kvedja Sigurros
Vá hvað þetta hljómar frábært hjá þér! Ég held samt slökkvitækið sé með því krúttilegra sem ég hef séð:D Ég ætla líka alltaf að muna þessa góðu góðu reglu að fara aldrei á slæma staði! Hafðu það gott:D
Kv Árný
Hæ,hæ, þetta er frábært hjá þér. Hlakka til að lesa meira. Hafðu það bara sem skemmtilegast. En stendur eitthvað hverjir þessir slæmu staðir eru? :) Kveðja Svanhildur :)
Já sigurrós við verðum að hittast fljótlega! Vá verða að finna hello kitty klósettpappír!!!
Já árný, verður að muna þetta með slæmu staðina! Sem ég veit ekkert frekar hverjir eru... Takk fyrir kveðjurnar!
Skrifa ummæli