Vá kannski kominn tími á smá blogg.. Ég er semsagt komin til Horsham, er bara að chilla með Gígju og Darren. Gígja fór með mig í smá göngutúr um nágrennið, parkið, og bæinn hér í Horsham og sýndi mér auðvitað húsið þeirra sem er ekkert smá flott! Fórum svo þrjú (eða fjögur með bumbubúanum) út að borða um kvöldið á ítölskum stað, rosa gott.Svo í dag fórum við Gígja til Brighton, það var æði! Gengum um miðbæinn, fórum að sjá þessa höll sem George IV lét byggja fyrir ástkonu sína, í Taj Mahal stíl, geðveik höll.
Gígja og höllin
Svo fórum við að Brighton Pier, sem er við ströndina, þar er tivoli og spilasalur og svona. Verð að fara aftur þangað og fara í tækin ;)
Í dag var geðveikt veður 23 stiga hiti og sól! Það er víst búið að vera leiðindaveður hér undanfarið svo það var fullt af fólki á ströndinni.
Það var rosa kósí að ganga um hliðargöturnar í Brighton og sjá allar litlu búðirnar, fengum okkur súkkulaði og jarðarberja crepes í hádeginu..mmm.. Svo á morgun er held ég ekkert plan... Fer svo næstu nótt í næsta ferðalag, sem er Heathrow-Vín-Tokyo, vélin fer snemma á mánudagsmorgni og ég verð komin til Tokyo á þriðjudagsmorgni (á tókýó tíma) sem er þá...11.30 á mánudagskvöldi? vá ég er alveg orðin rugluð í þessu.. en jæja..
Næsta blogg verður þá kannski bara frá Japan!
mata ne!
Næsta blogg verður þá kannski bara frá Japan!
mata ne!

3 tjáningar:
Skiljanlegt að þú sért rugluð í þessum tíma, ég legg ekki einu sinni í þessar pælingar. Ég er ennþá að hugsa um þetta crepes ;) Mig langar líka í svoleiðis.....
Gaman að sjá hvað Gígja lítur vel út og er blómleg :-) Góða ferð til Tokyo, þetta verður bara kosý þessa 12 tíma, sofa, borða og horfa á myndir.
kv mamma
Já vá ég er ennþá að reyna að venjast þessum tímamismun! Get ekki beðið eftir að fá þig út:)
Skrifa ummæli