Smá blogg svona til að láta vita að ég sé á lífi.
Ég er á lífi, það er bara ekkert merkilegt að gerast hjá mér.. Bara venjulegt, þannig séð, skóli á hverjum degi nema þegar er frí. En maður sér samt alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi, eitthvað skrítið, eitthvað óvenjulegt og lendir í nýjum aðstæðum.
Undanfarna daga er ég búin að vera í drykkjuleik sem ég samdi sjálf, sem gengur útá að drekka skrítinn drykk einu sinni á dag ;) Óáfengan sko.. Hitt væri nú ekkert of sniðugt svona í skólanum og svona.. En þetta er mjög spennandi og hingað til hef ég ekki dáið úr ógeði.
já... hmmm.....jamm...
Fór í dag í heimsókn á málmsmíðaverkstæðið hennar Mayumi sensei, þar sem ég mun læra skartgripasmíði einu sinni í viku næstu vikurnar! Mjög spennó, fæ að smíða eitthvað fallegt úr silfri. Svo var ég í því að túlka líka, Mayumi kann voða lítið í ensku, og hún Rachel sem er með mér í þessu kann voða lítið í japönsku, svo ég þurfti stundum að þýða. Mjög skemmtilegt. (Rachel sem er frá america kann greinilega ekki mikið í sínu eigin tungumáli því hún þurfti hjálp frá mér til að skrifa catterpillar.. fannst ég voða klár að kunna það!)
Ég er svo á morgun að fara í vettvangsferð í Tokyo National Museum með listakúrsinum mínum, það verður gaman. Svo eftir það er ég að fara að hitta hann Palla minn :D Hann er sko flugþjónn hjá All Nippon Airways (japanskt flugfélag), svo hann er hér í Tokyo reglulega, en við erum fyrst núna að ná að hittast hér í Tokyo! Hlakka ekkert smá til! :D
Ég er búin að setja nýjar myndir á myndasíðuna, (meira að segja 2 ný albúm síðan ég bloggaði síðast)
Foss í Toyama garðinum sem er bara handan við hornið frá húsinu mínu
Svo lærði ég kanji í dag sem tákna nafnið mitt, eða ef maður les það þá hljómar það eins, Furon (=Hrönn), 芙論 fyrra táknið er "fu" sem þýðir fegurð og það seinna "ron" merkir gáfur! Svo þetta er alveg perfect lýsing á mér, beauty and brains.
Annars þýðir Hrönn (sem þýðir alda eins og allir vita) nami á japönsku, sem er svona 波
Knús og kossar úr hlýjunni
Nami
Annars þýðir Hrönn (sem þýðir alda eins og allir vita) nami á japönsku, sem er svona 波
Knús og kossar úr hlýjunni
Nami

0 tjáningar:
Skrifa ummæli