Já, ég er búin að kaupa miðann til Tokyo, nú er þetta orðið aðeins raunverulegra að ég sé að fara!!
Ég mun fljúga með Austrian Airlines, sem Gunný frænka segir að sé mjög gott og góður matur, sem er nottlega fyrir öllu!! Mun semsagt fljúga frá London og millilenda í Vín og svo þaðan til Tokyo! Þetta verður alveg sólarhringsferðalag, svo ég er fegin að geta stoppað fyrst í London í nokkra daga, svo þetta verði ekki mikið lengra! Ógeð þægilegt að eiga vini og ættingja svona útum allan heim! ;) Mjög hentugt ef maður fer á flakk..
Ég er alveg komin með í magann núna af spenningi og smá kvíða.. Orðið svo raunverulegt að ég sé að fara út, þó þetta hafi verið planið síðustu tvö árin, þá er ég fyrst að fatta þetta núna að þetta sé að gerast..
Við sem erum að fara út ætlum öll að hittast í næstu viku og bera saman bækur okkar, hvort maður sé að gleyma einhverju mikilvægu sem þarf að gera áður en maður fer út og svona. Það þarf víst að gera eitthvað áður.. Ég sem flutti til London tvítug án þess að gera nokkurn skapaðan hlut nema kaupa flug út! Hehe að vera ungur og vitlaus..
Anyways, mæli með lastminute.com
fyrir ódýr flug!! Fann flugið mitt þar á 65 þúsund!, reyndar í gegnum momondo ,en það er víst happa glappa hvort íslensk kort séu tekin gild á svona síðum, en lastminute.com er pottþétt ;) Svo þið verðið bara að koma í heimsókn til japan, peningaleysi er ekki afsökun, þið hafið heilt ár til að safna því ég fer ekki heim fyrr en í ágúst á næsta ári!!
Knús í bala

(ohoo... eins gott að mamma sjái ekki þessa mynd.. var að googla austrian airlines..)

6 tjáningar:
iii þarf ekkert að safna, bara taka þetta á kortið :) Vona að þetta sé nú ekki vélin sem þú ferð með :(
Hehe, nei þetta er víst einhver fokker drusla ;) Engin hætta...
Nei sko, bara komin með blogg..úff við verðum að vera duglegar að segja fólkinu á Íslandi frá ævintýrunum okkar úti;)
já heldur betur, og við verðum með skemmtilegustu japansbloggin sko! ekki spurning!
Hmmm... er ekki viss um að ég leggi í sólarhringsferðalag með Austrian airlines eftir að hafa séð þessa mynd úffff. Ég ætla samt að koma í heimsókn til þín sko...
Ég elska Austrian Airlines!
Stelpurnar eru geðveikar, í rauðu frá toppi til táar, já líka rauðar sokkabuxur og rauðir skór... SUGOI!
Skrifa ummæli