miðvikudagur, ágúst 20, 2008

Komin með herbergi!

Já, ég er loksins búin að fá frá skólanum gögn um húsnæði fyrir mig!

Ég verð semsagt í einstaklingsherbergi í Hoshien heimavistinni sem er staðsett bara rétt hjá skólanum! Í Shinjuku, sem er aðalpleisið í Tokyo, aðal djammstaðurinn og svona! Þar má einnig finna "uppteknustu" (e. busiest) lestarstöð í heimi, Shinjuku Station, en á hverjum degi fara 3.6 MILLJÓNIR manna í gegn! Á hverjum degi! Og maður verður að passa sig að fara út á réttum stað, því annars ertu bara skrúfaður. Gæti tekið þig marga tíma að koma þér á réttan stað aftur! Svo þið ratið til mín . Ég mun búa í rauða kassanum, og skólasvæðið (eða hluti af því amk er þarna til hægri)


Byggingin mín er þessi neðsta til hægri, building 3, svo er nú gott að vita til þess að það er kirkja bara í næsta húsi, stutt að fara til að fara með bænirnar.

Já, ég verð semsagt á besta stað í bænum, í herbergi 79. Líst rosalega vel á þessa heimavist. Og að fá einstaklingsherbergi, með rúmi, skrifborði, stól, bókahillu, ísskáp, lampa og... ljósaperu í boði hússins!!! já þeir eru sko ekkert að spara í dekrinu við mann, bara splæst í ljósaperu og allt.
Svo er sameiginlegt eldhús, og þvottaaðstaða og ryksuga. Reyndar er hvergi minnst á klósett né baðaðstöðu.. kannski er ekkert gert ráð fyrir því að maður þurfi þess neitt.

Reglurnar virðast ekki vera eins strangar og ég bjóst við, maður á að vera kominn heim kl 1 eftir miðnætti, útidyrahurðin er opin frá 7.30 - 01.00, ohh damn.. ég verð þá að hætta við morgunskokkið mitt sem ég fer alltaf í klukkan 6... jæja...
Ég hafði nefnilega séð á flestum af þessum heimavistum er útivistarbann eftir klukkan 11, oft fyrr, en ég má vera úti til eitt, ligga ligga lái!! En engir gestir eru leyfðir inni á herbergi eftir kl 11, ekki einu sinni þeir sem búa á heimavistinni.
Annars virðast ekki vera neinar strangar reglur, bara þetta helsta, engin "óheimil" partý, engin dýr, ekki hengja þvott útum gluggann og svona. Og fyrir herlegheitin borga ég ca 50 þúsund íslenskar krónur á mánuði (með rafmagni og hita og símalínu og loftkælingu)

Nýja heimilisfangið mitt:
Waseda Hoshien International
Room # 03- 079
2-3-1 Nishi Waseda Shinjuku-ku
Tokyo 169-8616 Japan

Og símanúmerið mitt verður á herberginu:
+81-3-32-05-6614

Annars skil ég ekki hvernig í ósköpunum gatnakerfið í japan virkar, það eru víst engin götuheiti, nema á þessum stærstu götum, og svo eru húsin númeruð eftir því hvenær þau eru byggð! Svo að hús númer 12 getur verið við hliðiná 1345, hafi það verið byggt fyrr! Mjög spes, ekki mundi ég vilja vera póstburðarmaður þar.. Svo nota þeir víst bara kennileyti til að komast leiðar sinnar. Mjög sérstakt! Í eins stórri borg og Tokyo er, þá bara skil ég ekki hvernig þetta getur gengið upp!

Svo má líka minnast á þá skemmtilegu staðreynd að í Shinjuku "hverfinu" búa rúmlega 312.000 manns! Bara jafnmargir og á öllu íslandi!! ca 17000 manns á hvern ferkílómeter.
Annars er hverfið mikið verslunarhverfi, helstu raftækjaverslanirnar og svona ( sem hver er 8 hæðir eða svo) Þar eru líka að finna hæstu skýjakljúfa borgarinnar, en líka almenningsgarða já og bara allt sem maður þarfnast held ég..

Hey já, svo er H&M að fara að opna í fyrsta skipti í Japan í haust!! Bara í "næsta" hverfi við mig, Harajuku ;) Kannski einhver von til þess að ég finni á mig föt í japan!

Knús í klessu

sunnudagur, ágúst 03, 2008

Smá mont

Ég var að gera hundabæli handa hundunum (Herkúlesi og Bangsa)!

Fyrst keypti ég svona dúkkurúm í Ikea
Svo málaði ég það svart, bjó til stensla og spreyjaði silfur, og lakkaði svo yfir det hele og Voila! Geggjað töff hundarúm fyrir tvo!! Og þeir eru geðveikt að fíla sig í því!!
Kúra báðir saman í því!!
Herra Herkúles að fíla sig í nýja rúminu
Og svo kúra þeir báðir saman ;) (með einhverju nagdóti)



fimmtudagur, júlí 31, 2008

Dagskráin mín fyrstu dagana í skólanum!


Set hér inn dagskrána fyrir fyrstu dagana mína í skólanum! Kennslan byrjar ekki fyrr en 29.sept, en það er nóg að gera þangað til greinilega! Samt alveg nokkrir dagar í frí á milli..


Smellið til að sjá stærra!



mánudagur, júlí 28, 2008

Ma/pa/eb í Tælandi

Mikið hlýtur að vera leiðinlegt á Krabi í Tælandi... líst ekkert á þetta.. Mamma og Emilíana Birta á fílsbaki í Tælandi

miðvikudagur, júlí 23, 2008

Komin með miðann út!

Já, ég er búin að kaupa miðann til Tokyo, nú er þetta orðið aðeins raunverulegra að ég sé að fara!!

Ég mun fljúga með Austrian Airlines, sem Gunný frænka segir að sé mjög gott og góður matur, sem er nottlega fyrir öllu!! Mun semsagt fljúga frá London og millilenda í Vín og svo þaðan til Tokyo! Þetta verður alveg sólarhringsferðalag, svo ég er fegin að geta stoppað fyrst í London í nokkra daga, svo þetta verði ekki mikið lengra! Ógeð þægilegt að eiga vini og ættingja svona útum allan heim! ;) Mjög hentugt ef maður fer á flakk..

Ég er alveg komin með í magann núna af spenningi og smá kvíða.. Orðið svo raunverulegt að ég sé að fara út, þó þetta hafi verið planið síðustu tvö árin, þá er ég fyrst að fatta þetta núna að þetta sé að gerast..
Við sem erum að fara út ætlum öll að hittast í næstu viku og bera saman bækur okkar, hvort maður sé að gleyma einhverju mikilvægu sem þarf að gera áður en maður fer út og svona. Það þarf víst að gera eitthvað áður.. Ég sem flutti til London tvítug án þess að gera nokkurn skapaðan hlut nema kaupa flug út! Hehe að vera ungur og vitlaus..

Anyways, mæli með
lastminute.com
fyrir ódýr flug!! Fann flugið mitt þar á 65 þúsund!, reyndar í gegnum
momondo ,en það er víst happa glappa hvort íslensk kort séu tekin gild á svona síðum, en lastminute.com er pottþétt ;) Svo þið verðið bara að koma í heimsókn til japan, peningaleysi er ekki afsökun, þið hafið heilt ár til að safna því ég fer ekki heim fyrr en í ágúst á næsta ári!!

Knús í bala

(ohoo... eins gott að mamma sjái ekki þessa mynd.. var að googla austrian airlines..)

föstudagur, júlí 11, 2008

Tveir mánuðir!!

Nú eru bara tveir mánuðir í að ég flytji úr landi alla leið til Japan! Eftir að hafa lært japönsku í 2 ár í Háskóla Íslands er komið að síðasta árinu mínu sem ég tek í Japan, ég fékk inngöngu í Waseda Háskóla í Tokyo sem er víst einn virtasti og besti háskóli Japan! Ég er ekkert smá spennt að fara! Ég á að mæta 16. september og verð ég sótt út á völl þá, en planið er að vera í nokkra daga í London áður að heimsækja Gígju, Darren og Palla :D

Ég er semsagt bara byrjuð að pakka og undirbúa þessa dagana, en svo ætla ég að koma með krassandi sögur á þetta blogg og svona ;) Og myndir af kreisí japönum auðvitað :P

Knús í bala


(ein krúttleg mynd af Herkúlesi og Bangsa sofandi fyrir mömmu og litlu sys
sem eru staddar í Tælandi!)